Málefnaáherslur
Ábyrg fjármálastjórn og skýr framtíðarsýn
Miklu máli skiptir að framtíðarsýnin sé skýr og settar séu fram raunhæfar áætlanir. D-listinn mun leggja fram skýra og raunhæfa áætlun um hvernig megi bæta rekstur sveitarfélagsins, lækka skuldahlutfall og skapa forsendur til að lækka gjöld og fasteignaskatta.
Framsækið skólastarf í fjölskylduvænu samfélagi
D-listinn vill leggja áherslu á að hagsmunir nemenda séu ávallt í fyrirrúmi. Vellíðan barna og starfsmanna er grunn forsenda árangurs og betri félagslegrar tengslamyndunar á öllum skólastigum.
Skýr framtíðarsýn í umhverfis- og skipulagsmálum
D-listinn mun vinna að framtíðar skipulagi þéttbýliskjarna í sátt og samlyndi við íbúa. Við viljum stuðla að fjölbreyttu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem gert er ráð fyrir íbúðarbyggð sem uppfyllir þarfir íbúa á öllum æviskeiðum.
Öflugt íþrótta-, og frístunda- og forvarnarstarf
Mikilvægur hluti af fjölskylduvænu samfélagi er gott íþrótta-, frístund- og forvarnarstarf og vill D- listinn halda áfram að byggja á þeim sterka grunni. D-listinn vill tryggja greiðan aðgang að fjölbreyttu framboði íþrótta- og frístunda aðstöðu fyrir alla aldurshópa.
Fjölbreytt tækifæri og þjónusta fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins
Með auknum lífsgæðum undanfarna áratugi býr fólk almennt lengur við betri heilsu og býr lengur í eigin húsnæði. D-listinn vill að sveitarfélagið veiti góða þjónustu fyrir þennan aldurshóp og að sú þjónusta sem veitt sé markviss og skilvirk.
Fyrir fólkið í Árborg okkar allra!
D-listinn leggur áherslu á að Sveitarfélagið Árborg sem heilsueflandi samfélag bjóði upp á góða útivistarmöguleika sem hvetja til hreyfingar og aukinnar samveru fjölskyldunnar.
Fjölgun atvinnutækifæra og öflug nýsköpun
D-listinn leggur áherslu á öflugt atvinnulífi til framtíðar. Við ætlum að laða að fyrirtæki í fjölbreyttum rekstri og skapa umhverfi sem hvetur til nýsköpunar og gefur fyrirtækjum tækifæri til vaxtar og þróunar.
Velferðarþjónustan í Árborg okkar allra
D-listinn vill leggja áherslu á að Árborg skapi íbúum góð skilyrði til að lifa, dafna og njóta hvers æviskeiðs. Það er markmið D-listans að í Árborg að þeir einstaklingar og fjölskyldur sem þurfa á sérstökum stuðning að halda hafi aðgang að öflugri velferðarþjónustu.
Gróskumikið menningarlíf
D-listinn í Árborg vill standa fyrir gróskumiklu menningarstarfi þar sem fjölbreytileikinn fær að njóta sín í sinni víðustu mynd. Við viljum tryggja gott aðgengi að menningunni í okkar samfélagi, hvort sem um er að ræða söfn, listanámskeið, tónleika, bæjarhátíðir eða aðra önnur starfsemi.