Velferðarþjónustan í Árborg okkar allra

D-listinn vill leggja áherslu á að Árborg skapi íbúum góð skilyrði til að lifa, dafna og njóta hvers æviskeiðs. 

Það er markmið D-listans í Árborg að þeir einstaklingar og fjölskyldur sem þurfa á sérstökum stuðning að halda hafi aðgang að öflugri velferðarþjónustu. Velferðarþjónustu sem miðar að því að auka farsæld og lífsgæði íbúa. 

D- listinn hefur það að leiðarljósi að stuðningur og þjónustan einkennist ávallt af hjálp til sjálfshjálpar, valdeflingu, fagmennsku og virðingu manneskjunnar. Þannig geti sveitarfélagið veitt góða og fjölbreytta þjónustu í takt við þarfir íbúa.

Félagsþjónustan, við viljum: 

  • Auka og efla virkniúrræði fyrir þá sem þurfa

  • Auka aðgengi að upplýsingum um þjónustu félagsþjónustunnar og stuðning við einstaklinga og fjölskyldur

  • Fjölga úrræðum félagsþjónustu og barnaverndar í samráði við einkaaðila 

  • Leita leiða til að auka framboð af félagslegu leiguhúsnæði í samráði við einkaaðila  

  • Styðja við áframhaldandi innleiðingu laga um samþættingu þjónustu til farsældar í þágu barna og fjölskyldna

  • Aukin úrræði fyrir fullorðna með samþættan vanda og tvígreiningar, fíknivanda og geðvanda

Málefni fatlaðra, við viljum: 

  • Fjölga atvinnutækifærum fyrir einstaklinga með fötlun. t.d atvinna með stuðning

  • Huga markvisst að aðgengismálum fyrir fatlaða í öllu sveitarfélaginu og nýta úttekt sem var gerð á aðgengismálum í Árborg árið 2021

  • Bæta við virkniúrræðum eftir framhaldsskólanám fyrir einstaklinga með fötlun 

  • Vinna eftir samningi sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk

  • Hefja strax vinnu við áframhaldandi uppbyggingu á búsetukjarna í samstarfi við Bergrisann

  • Stuðla að því að Sveitarfélagið Árborg verði leiðandi í málaflokki fatlaðra

Málefni flóttafólks og innflytjanda, við viljum: 

  • Auka og efla verkefnastjórn um málefni flóttafólks

  • Aðgengi að upplýsingum um þjónustu í samfélaginu sé gott

Mannauðurinn í velferðarþjónustunni:

  • Markviss stuðningur við starfsfólk sem vinnur í velferðarþjónustu 

  • Aukið samtal við starfsfólk í velferðarþjónustu um þarfir þjónustunnar. t.d í formi reglulegra funda 

  • Tengja fjölda mála innan velferðarsviðs inn á mælaborð sveitarfélagsins

  • Styðja við mannauðinn vegna innleiðingu laga líkt og laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Markmiðið er að  bregðast við fjölbreyttum þörfum, veita samþætta þjónustu og stuðla að auknum lífsgæðum fyrir einstaklinga og fjölskyldur í Árborg.