1. sæti - Bragi Bjarnason

,,Ég er 45 ára, giftur, þriggja barna faðir, með stjórnenda- og viðskiptafræðimenntun (MBA) frá Háskóla Íslands. Hef starfað sem bæjarstjóri sl. tvö ár og formaður bæjarráðs frá 2022-2024. Þar á undan starfaði ég sem stjórnandi hjá Sveitarfélaginu Árborg í 14 ár. Á þessum tíma hef ég unnið að fjölbreyttum málaflokkum sem tengjast rekstri, fjölskyldunni og atvinnulífinu í samfélaginu.’’

2. sæti - Sveinn Ægir Birgisson

,,Ég er 28 ára Selfyssingur með grunnnám í kennslufræði frá Háskóli Íslands. Ég hef starfað við kennslu á unglingastigi og áður í félagsmiðstöðinni Zelsíuz. Mér finnst sérstaklega gefandi að vinna með börnum og ungmennum. Áherslur mínar eru málefni barna og ungmenna, ásamt uppbyggingu innviða og ábyrgri fjármálastjórn. Ég hef verið virkur í bæjarmálum í um tíu ár, meðal annars í Ungmennaráði Árborgar, sem formaður hverfisráðs Selfoss og nú sem bæjarfulltrúi frá 2022. Ég er einnig formaður Björgunarfélags Árborgar. Markmið mitt er að nýta reynslu mína til að ná enn lengra fyrir samfélagið okkar.”

3. sæti - Linda Björk Hilmarsdóttir

,,Ég er 39 ára og tveggja barna móðir á Selfossi. Ég er menntuð í markþjálfun, spænsku og ferða- og markaðsráðgjöf. Ég er meðeigandi að nokkrum rekstri á Selfossi og í Reykjavík, auk þess að starfa við starfsendurhæfingu og vinnustofu. Áherslur mínar eru velferðarþjónusta og uppbygging atvinnulífs. Ég hef reynslu af réttindabaráttu fatlaðra barna, rekstri og sjálfboðastarfi innan íþrótta. Ég vil samfélag þar sem allir fá tækifæri til að blómstra og legg áherslu á áframhaldandi uppbyggingu Árborgar með þarfir íbúa að leiðarljósi.

 

4. sæti - Brynhildur Jónsdóttir

,,Ég er 56 ára gömul fædd og uppalin á Selfossi, gift Guðjóni Kjartanssyni og eigum við þrjár dætur og 7 barnabörn. Ég er þroskaþjálfi og með framhaldsmenntun í opinberri stjórnsýslu og starfar í dag sem forstöðuþroskaþjálfi og bæjarfulltrúi í Árborg síðan 2018. Ég hef átt sæti í ýmsum ráðum og nefndum fyrir sveitarfélagið og verið virk í félagsstarfi. Mér þykir vænt um samfélagið okkar sem ég hef verið hluti af og þátttakandi  í að byggja upp. Ég vil halda áfram að vinna að  ábyrgum rekstri og sterkari innviðum og betri þjónustu fyrir íbúa Árborgar á öllu æviskeiði.’’

5. sæti - Þórhildur Ingvadóttir

,,Ég er 54 ára og starfa sem umsjónarmaður Lyfju á Selfossi. Ég er varabæjarfulltrúi, formaður Sjálfstæðisfélagsins Óðins og Öldungarráðs í Árborg. Ég brenn fyrir velferð og þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Ég bý á Selfossi, er gift og er stolt móðir fjögurra sona, tengdamóðir þriggja tengdadætra og amma fjögurra barnabarna.”

6. sæti - Kjartan Björnsson

,,Ég starfa sem rakari og forseti bæjarstjórnar. Ég er giftur Ingunni Helgadóttur framhaldsskólakennara og saman eigum við sjö börn og sex barnabörn. Ég hef setið í bæjarstjórn Árborgar frá árinu 2012. Áherslumál mín eru innviðir samfélagsins, vatnsöflun, fráveita og málefni eldri borgara eru mér sömuleiðis mjög mikilvæg. Íþrótta- og menningarmál í heild sinni eru mér svo mjög hugleikin.”

7. sæti - Sigurbjörg Guðmundsdóttir

Ég er 23 ára laganemi frá Eyrarbakka. Í frítíma mínum nýt ég þess að stunda hreyfingu, útivist, ferðalög og að fylgjast með íþróttum. Ég hef mjög gaman af því að læra nýja hluti en upp á síðkastið hef ég til að mynda verið að læra ný tungumál, golf og að prjóna (með misgóðum árangri). Ég brenn fyrir íþrótta-, æskulýðs- og menntamálum og málefnum ungs fólks almennt. Mér finnst mikilvægt að Árborg sé öflugur valkostur fyrir ungt fólk til að stofna fjölskyldu og heimili. Að auki legg ég mikla áherslu á að Árborg mæti þörfum íbúa óháð búsetu þeirra innan sveitarfélagsins.

8. sæti - Sigríður Ósk Harðardóttir

,Ég er 44 ára rekstrarfulltrúi hjá Selfossveitum og stunda viðskiptafræðinám. Íþróttir hafa lengi verið stór hluti af lífi mínu og ég starfaði sem þjálfari og dómari í fimleikum í yfir 20 ár. Í dag tek ég þátt sem foreldri í íþróttastarfi í Árborg og vil efla það enn frekar. Ég legg áherslu á fjölbreytt menntakerfi og aukna orkuöflun til að styðja við uppbyggingu. Markmið mitt er að gera Árborg að enn betri stað til að búa og lifa í.

9. sæti - Gísli Rúnar Gíslason

,,Ég er 24 ára leiðbeinandi í grunnskóla. Ásamt því stunda ég nám í kennslufræðum við Háskólann á Akureyri. Í frítíma mínum reyni ég að verja tíma með fjölskyldu minni. Áherslur mínar er öflug þjónusta sem allir íbúar geta notið óháð búsetu. Ég legg einnig áherslu á sterka innviði sem eflast í takt við íbúafjölgun..’’

10. sæti - Esther Ýr Óskarsdóttir

,,Ég er 28 ára tveggja barna móðir. Útskrifaðist 2021 með meistarapróf í lögfræði og starfa í dag sem regluvörður hjá Heimum. Sköpun er stór hluti af mér líka og þykir mér mjög mikilvægt að halda í skapandi hliðina á mér og er ég því í mínum frítíma að mála og taka ljósmyndir. Ég brenn sérstaklega fyrir fjölskyldumálefnum, að tryggja góða þjónustu við börn og fjölskyldur og skapa öruggt og jákvætt nærumhverfi. Samhliða því brenn ég fyrir sterku atvinnulífi tryggja að atvinnustarfsemi geti þrifist í sveitarfélaginu.’’