Fjölgun atvinnutækifæra og öflug nýsköpun

D-listinn leggur áherslu á öflugt atvinnulífi til framtíðar. Við ætlum að laða að fyrirtæki í fjölbreyttum rekstri og skapa umhverfi sem hvetur til nýsköpunar og gefur fyrirtækjum tækifæri til vaxtar og þróunar. Atvinnustefna Árborgar þarf að vera skýr og styðja við samfélagslega uppbyggingu sveitarfélagsins. 

Við ætlum að: 

  • Skapa góð skilyrði fyrir fyrirtæki að öllum stærðum að starfa í sveitarfélaginu og tryggja atvinnulóðir til að laða að ný fyrirtæki

  • Gera atvinnustefnu með skýrum markmiðum varðandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu og hvernig við ætlum að laða til okkar fyrirtæki í fjölbreyttum rekstri

  • Efla nýsköpunarhugsun á öllum skólastigum í samvinnu við FabLab, atvinnulífið og háskólafélagið  

  • Styðja við sprotafyrirtæki og minni fyrirtæki í samvinnu við háskólafélagið og SASS  

  • Klára uppbyggingu við Austurveginn

  • Efla samtal og samvinnu við ferðaþjónustuaðila, verslun og aðra þjónustu til að auðvelda kynningar- og markaðsstarf fyrir íbúa og ferðamenn. Við erum sterkari saman

Markmiðið er að skapa fjölbreytt atvinnutækifæri í Árborg svo íbúar geti haft valmöguleika um áhugaverð störf í nærsamfélaginu, stutt frá heimili og fjölskyldu.