Skýr framtíðarsýn í umhverfis - og skipulagsmálum
D-listinn mun vinna að framtíðar skipulagi þéttbýliskjarna í sátt og samlyndi við íbúa. Við viljum stuðla að fjölbreyttu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem gert er ráð fyrir íbúðarbyggð sem uppfyllir þarfir íbúa á öllum æviskeiðum. D - listinn vill gæta hagsmuna samfélagsins og að íbúafjölgun skerði ekki þjónustu núverandi íbúa.
Við ætlum að:
Setja innviðauppbyggingu í forgang, fráveitu ásamt heita -og kaldavatnsöflun
Gera Svf. Árborg að ákjósanlegum stað fyrir fyrirtæki með auknu framboði atvinnulóða
Leggja fram skýra framtíðarstefnu um uppbyggingu allra svæða í sveitarfélaginu
Deiliskipulag svæða sé með skýrum markmiðum um umhverfisvæna byggingarkosti, fjölbreytta byggð, snyrtilegan frágang, opin og fjölskylduvæn svæði.
Hefja stefnumótun sveitarfélagsins í átt að sjálfbærri framtíð með heimsmarkmið sameinuðu þjóðana að leiðarljósi
Klára að setja upp lýsingu við fjölfarna stíga svo sem Fjörustíginn
Styðja við rafbílavæðingu, t.d. með skipulagi fyrir aðstöðu hleðslustöðva
Markmiðið er að byggja trausta innviði og skapa sjálfbært samfélag sem hlúir að náttúrunni.