Gróskumikið menningarlíf
D-listinn í Árborg vill standa fyrir gróskumiklu menningarstarfi þar sem fjölbreytileikinn fær að njóta sín í sinni víðustu mynd. Við viljum tryggja gott aðgengi að menningunni í okkar samfélagi, hvort sem um er að ræða söfn, listanámskeið, tónleika, bæjarhátíðir eða aðra önnur starfsemi.
Við ætlum að:
Eiga gott samstarf og styðja við viðburða- og hátíðarhaldara um þær fjölmörgu bæjarhátíðir og viðburði sem fara fram á hverju ári
Auka framboð á námskeiðum í listum og öðrum skapandi greinum.
Skoða uppbyggingu nýrra safna í sveitarfélaginu í samstarfi við félagasamtök eða einkaaðila. Þar má til að mynda nefna tónlistarsögusafn
Klára uppbyggingu menningarsals í Hótel Selfoss í samvinnu við einkaaðila til að skapa öflugt umhverfi til ráðstefnu og viðburðahalds
Markmiðið er að menning og listir séu gildur þáttur í hverju samfélagi og vilju