Ábyrg fjármálastjórn og skýr framtíðarsýn

Miklu máli skiptir að framtíðarsýnin sé skýr og settar séu fram raunhæfar áætlanir. D-listinn mun  leggja fram skýra og raunhæfa áætlun um hvernig megi bæta rekstur sveitarfélagsins, lækka skuldahlutfall og skapa forsendur til að lækka gjöld og fasteignaskatta. 

Við ætlum að: 

  • Sýna trúverðuleika með raunhæfum fjárhagsáætlunum til 1.-4. ára, skýrum markmiðum, ábyrgri ráðningarstefnu og aðhaldi í rekstri

  • Gera nákvæma greiningu á núverandi rekstrarstöðu sveitarfélagsins

  • Auka tekjur sveitarfélagsins með því að örva framtak einkaaðila og atvinnufyrirtækja

  • Opna bókhald sveitarfélagsins

  • Koma á stafrænni umbreytingu, einfalda verkferla og skýrar boðleiðir

Markmiðið er að skapa forsendur til lækkunar á álögum og sköttum og góðra lífskjara fyrir alla íbúa sveitarfélagsins