Fyrir fólkið í Árborg okkar allra!
D-listinn leggur áherslu á að Sveitarfélagið Árborg sem heilsueflandi samfélag bjóði upp á góða útivistarmöguleika sem hvetja til hreyfingar og aukinnar samveru fjölskyldunnar. Mikilvægt er að íbúar á öllum aldri fái um leið tækifæri til að taka þátt og hafa áhrif á sitt nærsamfélag.
Við ætlum að:
Efla samskipti og upplýsingaflæði í gegnum heimasíðu og samfélagsmiðla
Halda reglulega íbúafundi og efla hverfisráðin með aukinni samvinnu við bæjarstjórn
Nýta stafrænar lausnir og með því auka sjálfsafgreiðslu íbúa og fyrirtækja ásamt því að geta leitað álits íbúa um mikilvæg málefni
Halda áfram innleiðingu verkefna í tengslum við heilsueflandi samfélag og m.a. leggja áherslu á geðheilsu
Fjölga fjölbreyttum útivistarkostum líkt og frisbígolfvöllum, fjallahjólastíg og merktum gönguleiðum sem nýtast bæði íbúum og ferðaþjónustuaðilum
Koma upp útivistarsvæðum með grillaðstöðu í hverjum þéttbýliskjarna
Halda áfram með opna fjölskyldutíma í íþróttamannvirkjum í öllum þéttbýliskjörnum
Bæta aðstöðu fyrir hjólastæði til að hvetja íbúa að nota hjól sem ferðamáta
Markmiðið er að efla samskipti og upplýsingaflæði til íbúa og bjóða upp á fjölbreytta möguleika til afþreyingar fyrir alla aldurshópa.