Framsækið skólastarf í fjölskylduvænu samfélagi
D-listinn vill leggja áherslu á að hagsmunir nemenda séu ávallt í fyrirrúmi. Vellíðan barna og starfsmanna er grunn forsenda árangurs og betri félagslegrar tengslamyndunar á öllum skólastigum. D-listinn vill byggja á styrkleikum hvers og eins, efla snemmtæka íhlutun og valfrelsi um fjölbreytt skólastarf, öflug frístundaheimili og dagvistunarúrræði fyrir yngstu börnin.
Við ætlum að:
Leggja áherslu á að Sveitarfélagið Árborg bjóði upp á fjölbreytt skólastarf og leggi áherslu á snemmtækri íhlutun, líðan og styrkleika hvers og eins nemenda
Samræma skipulags leik- og grunnskólastarfs við vinnutíma fjölskyldunnar og atvinnulífsins
Vera málsvari að öflugu háskólanáms í sveitarfélaginu
Að niðurgreiðsla til foreldra vegna daggæslu verði frá 10 mánaða aldri.
Skoða mismunandi uppbyggingar- og rekstrarform leik- og grunnskóla með fagmennsku, fjölbreytileika og hagkvæmni að leiðarljósi
Halda áfram að bæta starfsaðstæður í skóla- og frístundaheimilum í samvinnu við starfsfólk
Klára uppbyggingu Stekkjaskóla og tryggja framtíðarskólahúsnæði á Eyrarbakka í samvinnu við íbúa
Setja fram skýrt framtíðarskipulag um uppbygginu skóla- og frístundaheimila út frá byggðarstefnu og spá um íbúaþróun
Leggja áherslu á markvissa starfsáætlun og faglegt starf á frístundarheimilunum.
Markmiðið er að allt skólastarf í Árborg miði af því að auka trú nemenda á eigin getu, stuðli að vellíðan barna í skólasamfélaginu og öflun þekkingar sé með fjölbreyttum og hagnýtum leiðum sem eru í takti við tækifæri og áskoranir 21 aldarinnar.