Stefnuskrá D-listans í Árborg 2026 – 2030
-
Við viljum samfélag þar sem álögur eru lágar, aðgengi íbúa að stjórnsýslunni er skilvirkt og til staðar sé virkt samtal við íbúa og atvinnulíf.
Þess vegna ætlum við að:
• Stunda áfram ábyrga fjármálastjórn
• Lækka áfram fasteignagjöld og aðrar álögur á einstaklinga og fyrirtæki
• Virkja einkaframtakið með fjölbreyttum hætti
• Efla aðkomu íbúa með reglulegum íbúafundum allt kjörtímabilið
• Halda áfram stafrænni umbreytingu og nýta tækifæri gervigreindar
• Uppfæra heimasíðu fyrir sveitarfélagið
-
Við viljum samfélag þar sem umhirða og umhverfismál eru til fyrirmyndar og horft sé til umhverfisvænna lausna.
Þess vegna ætlum við að:
• Bæta aðgengi á göngustígum fyrir m.a. barnavagna, hjólastóla og rafskutlur
• Stórauka átak í umhirðu og umhverfismálum í sveitarfélaginu
• Efla enn frekar endurvinnslu í sveitarfélaginu sem skilar sér í lægri gjöldum til íbúa og fyrirtækja
•Setja aukið fjármagn til uppbyggingar á grænum svæðum
• Bæta aðstöðu við hundasleppisvæði og gera nýtt fyrir smáhunda
-
Við viljum samfélag þar sem eru traustir innviðir, fjölbreyttar lóðir fyrir íbúðir og atvinnustarfsemi og framtíðarsýn í skipulagsmálum.
Þess vegna ætlum við að:
• Tryggja að uppbygging innviða haldist í hendur við uppbyggingu íbúða- og atvinnuhúsnæðis
• Skipuleggja fjölbreytta búsetukosti fyrir eldri íbúa í sveitarfélaginu
• Árborg verði í fararbroddi í uppbyggingu einbýlis-, rað- og parhúsa
• Auka lóðaframboð á Eyrarbakka og Stokkseyri
• Klára uppbyggingu Sigtúnsgarðs á Selfossi
• Taka í notkun nýjan kirkjugarð
• Vinna skýra stefnu um þungaflutninga innan bæjarmarka í sveitarfélaginu
-
Við viljum samfélag sem er skapandi, hvetjandi og opið fyrir nýjum tækifærum.
Þess vegna ætlum við að:
• Skapa skilyrði fyrir áframhaldandi vöxt atvinnulífs í sveitarfélaginu
• Tryggja áframhaldandi framboð atvinnulóða
• Efla frumkvöðla og nýsköpun í samstarfi við Háskólafélag Suðurlands
• Styðja við aukna samvinnu skóla og atvinnulífs
• Lækka álögur á fyrirtæki
-
Við viljum samfélag sem hvetur til fjölbreytts ferðamáta og hugar að umhverfisvænum valkostum. Sveitarfélagið Árborg verði í fararbroddi sem hreyfisamfélag.
Þess vegna ætlum við að:
• Gera átak í uppbyggingu og viðhaldi göngu-, reið- og hjólastíga
• Bæta skipulag frístundaaksturs milli byggðarkjarna sveitarfélagsins
• Bæta aðgengi fyrir hjólandi vegfarendur í sveitarfélaginu
• Stuðla að auknu umferðaröryggi
• Auka rafbílavæðingu bifreiða sem sinna akstri fyrir Árborg
• Bjóða út lóðir undir flugskýli við Selfossflugvöll
-
Í Árborg er gróskumikið og fjölbreytt menningarlíf sem vert er að styðja. Öflug menning skapar farsælt samfélag.
Þess vegna ætlum við að:
• Styðja áfram og efla bæjarhátíðir og viðburði í sveitarfélaginu
• Vinna áfram að uppbyggingu menningarsalar á nýjum stað í samstarfi við ríki og einkaaðila
• Koma af stað uppbyggingu nýs húsnæðis fyrir Tónlistarskóla Árnesinga á Selfossi
• Stuðla áfram að auknu framboði námskeiða í listum og skapandi greinum
• Efla bókasöfnin í Árborg sem fjölbreyttar menningar- og samfélagsmiðstöðvar
-
Við viljum samfélag sem hvetur til hreyfingar og að íbúar geti notið fjölbreyttra útivistarmöguleika til samveru og afþreyingar.
Þess vegna ætlum við að:
• Efla útivistarsvæðin í Árborg, m.a. Hellisskóg, Hallskot við Eyrarbakka og við listaverkið Kríuna í samstarfi við skógræktarfélögin í Árborg
• Fjölga frisbígolfvöllum í Árborg
• Tryggja öruggar reiðleiðir í samstarfi við Hestamannafélagið Sleipni
• Byggja upp nýtt tjaldsvæði og tengja við Hellisskóg á Selfossi
-
Við viljum samfélag með góða grunnþjónustu þar sem höfum öll sömu tækifæri. Samfélag sem er opið fyrir fjölbreytileika.
Þess vegna ætlum við að:
• Efla stoðþjónustu sveitarfélagsins fyrir börn og ungmenni
• Fjölga atvinnu- og virkniúrræðum einstaklinga með skerta starfsgetu
• Efla virkniúrræði ungs fólks í samstarfi við Eljuna og fleiri
• Halda áfram að bæta aðgengi við fasteignir sveitarfélagsins
• Fjölga plássum og vinna að framtíðarhúsnæðismálum fyrir dagdvölina Árblik og Vinaminni
-
Við viljum samfélag þar sem valfrelsi, fjölbreytileiki og sjálfstæði er í skólastarfi. Árborg er í fararbroddi í farsæld barna sem byggir sterkan grunn að góðu samfélagi.
Þess vegna ætlum við að:
• Horfa til fleiri sjálfstætt starfandi leik- og/eða grunnskóla í sveitarfélaginu
• Bæta enn frekar starfsaðstæður í leik- og grunnskólum fyrir nemendur og starfsfólk
• Styðja við sjálfstæði hvers leik- og grunnskóla
• Fylgja eftir innleiðingu farsældar barna “8-vita æskunnar” og auka áfram samstarf milli fagaðila
• Efla háskólasamfélagið á svæðinu og möguleika ungmenna til náms í heimabyggð
• Endurbæta skólalóðir grunnskólanna
• Setja fram skýra framtíðarsýn um húsnæðismál BES á Eyrarbakka
-
Við viljum samfélag þar sem allir íbúar geta notið íþrótta- og/eða frístundastarfs, bæði í afreksstarfi eða til skemmtunar. Forvarnargildi íþrótta- og frístundastarfs er ómetanlegt.
Þess vegna ætlum við að:
• Hækka frístundastyrkinn í 70.000 kr. fyrir börn 6-18 ára og 35.000 kr. fyrir börn 0-5 ára
• Taka í notkun nýtt svæði fyrir Skátafélagið Fossbúa á móti Sunnulækjarskóla
• Styðja enn frekar fjölbreytt forvarnastarf m.a. flakkandi félagsmiðstöð, geðheilbrigðismál og fleira
• Opna félagsmiðstöðvar í hverjum grunnskóla til að efla þátttöku unglinga í Árborg
• Taka í notkun nýtt íþróttamannvirki fyrir fimleika, handbolta og fleira frístundastarf við Stekkjaskóla
• Vinna áfram að skýrri framtíðarsýn uppbyggingar og viðhalds íþrótta- og frístundamannvirkja í samvinnu við félagasamtök
-
Við teljum að það sé gott að eldast í Árborg og eldri íbúar geti notið lífsins á eigin forsendum.
Til að svo megi vera áfram ætlum við að:
• Vera áfram með tengiráðgjafa í verkefninu “Gott að eldast”
•Funda áfram reglulega með félögum eldri borgara í sveitarfélaginu
• Auka samstarf ungmennaráðs og skóla við eldri borgara til að efla félagsþátttöku
• Opin heilsuefling fyrir eldri íbúa í Árborg geti vaxið áfram
• Ljúka við endurbætur á félagsaðstöðu eldri borgara í Grænumörk
• Byggja upp afþreyingarmöguleika á Sýslumannstúninu á Selfossi
-
Við viljum samfélag sem hvetur til fjölbreyttrar hreyfingar og útivistar. Þar viljum við að Árborg verði í fararbroddi með góða þjónustu og hvatningu til heilsusamlegs lífsstíls. Árborg er skemmtilegri borg.
Þess vegna ætlum við að:
• Stuðla að auknum möguleikum til hreyfingar í Árborg
• Koma upp grillaðstöðu á grænum svæðum
• Byggja upp nýjan heitan pott og kennslu- og keppnislaug við Sundhöll Selfoss
• Klára endurbætur á búningsaðstöðu og tækjabúnaði í Sundlaug Stokkseyrar
• Koma upp skautasvelli á Selfossi og bæta aðstöðu við Löngudæl á Stokkseyri
-
Við viljum samfélag þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Forgangsröðun sé byggð á þörfum barna og ungmenna með það að markmiði að skapa sterkan grunn til framtíðar.
Þess vegna ætlum við að:
• Lækka almenn námsgjöld á leikskólum
• Fjölga leikskólaplássum í samræmi við íbúaþróun
• Tryggja dagforeldrum aukna aðstöðu til að hittast með börnin
• Bætt skipulag frístundaaksturs og frístundastyrkur hækkaður
• Bæta leiksvæði fyrir alla aldurshópa
• Ýta undir fjölbreytta viðburði sem hvetja til samveru fjölskyldunnar