Öflugt íþrótta-, frístunda- og forvarnarstarf
Mikilvægur hluti af fjölskylduvænu samfélagi er gott íþrótta-, frístund- og forvarnarstarf og vill D- listinn halda áfram að byggja á þeim sterka grunni. D-listinn vill tryggja greiðan aðgang að fjölbreyttu framboði íþrótta- og frístunda og aðstöðu fyrir alla aldurshópa.
Við ætlum að:
Setja skýr markmið um aukna þátttöku óháð efnahag með eflingu frístundastyrksins og góðri samvinnu við félagasamtök og fyrirtæki
Klára uppbyggingu frístundamiðstöðvar og setja fram heildarsýn á uppbyggingu og forgangsröðun fyrir íþrótta- og frístunda mannvirki í öllu sveitarfélaginu
Nýta fjölbreytt forvarnar úrræði með snemmtæka íhlutun að markmiði og ná til fleiri barna og ungmenna. Má þar nefna Hjólakraft, rafíþróttir, skapandi starf o.fl
Laga skipulag frístunda aksturs og innanbæjarstrætó svo þau nýtist börnum sem best til og frá frístundastarfi
Leggja áherslu á heilsueflandi úrræði þannig að hver og einn finni eitthvað við sitt hæfi
Auka fræðslu á öllum aldursstigum um forvarnir og heilsusamlegan lífsstíl
Setja upp árlega lýðheilsuvika í samstarfi við HSu og fleiri hagsmunaaðila
Auka aðgengi og kynningu á rafíþróttum og öðrum jaðargreinum í gegnum frístundavefinn og aðra miðla
Auka möguleika á fjölbreyttu mótahaldi í almenningsgreinum líkt og hlaupum, golfi, hjólreiðum og fleiru
Markmiðið er skapa heilsueflandi samfélag þar sem allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi, tekið þátt og notið sín. Hvort sem það er einstaklingur í afreksíþróttum, skapandi starfi eða almennri hreyfingu til skemmtunar og leiks.