Fjölbreytt tækifæri og þjónusta fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins

Með auknum lífsgæðum undanfarna áratugi býr fólk almennt lengur við betri heilsu og býr lengur í eigin húsnæði. D-listinn vill að sveitarfélagið veiti góða þjónustu fyrir þennan aldurshóp og að sú þjónusta sem veitt sé markviss og skilvirk. D-listinn vill að öflugt samstarf og samtal sé við félög eldri borgara og að eldri íbúar sveitarfélagsins hafi aðgang að góðu íþrótta-, menningar, frístunda- og félagsstarfi. 

Við ætlum að: 

  • Setja fram skýra stefnu í málefnum eldri borgara í samstarfi við hagsmunaaðila með það að leiðarljósi að skilgreining verkefna og þjónustu sé skýr

  • Halda reglulega fundi með félögum eldri borgara í sveitarfélaginu allt kjörtímabilið. Halda góðu samstarfi og heyra þörfina hverju sinni

  • Halda áfram heilsueflingu fyrir 60+ á Selfossi og Eyrarbakka og bæta við sambærilegum tímum á Stokkseyri

  • Sýslumannstúnið sé byggt upp sem útivistarsvæði fyrir íbúa 

  • Sveitarfélagið sé sterkur málsvari eldri borgara í samtali við hið opinbera ef þjónustan færist enn frekar yfir á sveitarfélögin

  • Fjölga og gera aðgengilega fjölbreytta búsetukosti fyrir eldri íbúa sveitarfélagsins

  • Vinna náið með Heilbrigðisstofnun Suðurlands í tengslum við heimahjúkrun og félagslegan stuðning

Markmið er að það sé bæði gott og gaman að eldast í Árborg og að hver íbúi hafi aðgang að nauðsynlegri þjónustu og tækifærum fyrir hvers konar heilsueflingar í nærsamfélaginu