Meðmæli
Þórhildur Ingvadóttir
-
,,Ég hef þekkt Þorhildi allt mitt líf. Þórhildur er heiðarleg, ákveðin og með mikla réttlætiskennd. Hún er vinur vina sinna og ofboðslega skemmtileg.''
— Birgir Marteinsson, Lögfræðingur
-
,,Þórhildur er ein duglegasta kona sem ég þekki, hún er orkumikil og gerir allt vel sem hún tekur sér fyrir hendur. Helsti kosturinn er þó sá að allt sem hún tekur að sér, gerir hún af einlægni og hlýhug''.
— Áslaug Alda, þjónustufulltrúi.
-
Ég hef þekkt Þórhildi frá fimm ára aldri og hefur hún reynst mér einstaklega hjálpaleg sérstaklega síðan ég flutti til Íslands. Það er meðal annars henni að þakka að ég settist að á Íslandi og að ég aðlagaðist svo vel að íslensku samfélagi. Þórhildur hefur alltaf verið til staðar og fús til að hjálpa og aðstoða mig í öllum lífsástæðum. Hún er einstaklega greiðasöm, trygg og með góða samfélagsvitund. Þess vegna treysti ég Þórhildi fullkomlega í öllum verkefnum og trúi því að hún muni auðga Árborg í sveitastjórnastörfum.
— Vanessa Monika Isenmann, Adjúnkt í Þýsku (Háskóla Íslands)