Meðmæli
Helga Lind Pálsdóttir
-
,,Helga Lind er fylginn sér, heiðarleg og ákveðin. Hún hræðist ekki að takast á við ný verkefni. Helga Lind er búin þeim kosti að ná fólki með sér með eldmóð og smitandi áhuga á viðfangsefninu.''
— Svava Davíðsdóttir, félagsmálastjóri.
-
,,Helga Lind er full orku, hugmyndarík og drífandi. Hún er traust og trygg fólki og ber hag annarra fyrir brjósti. Manngæska er einn af stóru kostum Helgu Lindar. Hún kemur jafnt fram við alla og hlustar á og virðir skoðanir annarra.''
— Svanhildur Ólafsdóttir, félagsráðgjafi
-
,,Helga Lind er áræðin, hugrökk og býr yfir mikilli þekkingu á félagsmálum vegna reynslu sinnar og menntunar. Hún er traust, trú, fyndinn og sér það góða í fólki. Sér möguleika og lausnir í krefjandi aðstæðum og á auðvelt með breytingastjórnun.''
— Valdimar Þór Svavarsson, Framkvæmdastjóri