Meðmæli

Fjóla St. Kristinsdóttir

  • „Fjóla er ekki bara klár á bókina, hún hefur líka afburðagáfur þegar kemur að fólki; að sjá ólík sjónarmið og sætta þau. Hún hefur líka þá fágætu gáfu að átta sig á ef hún þekkir ekki nógu vel til einhvers og er tilbúin að hlusta á aðra. Einmitt þess vegna treysti ég Fjólu og hennar dómgreind”. ​ Ingunn Agnes Kro, stjórnarmaður

    — Ingunn Agnes Kro, stjórnarmaður

  • „Fjóla tekst á við hlutina af einlægni og um leið mikilli festu. Hún er fylgin sér og gefur sig alla í að klára verkefni og ná þeim árangri sem markmið segja til um“. ​ Brynjar Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Sessor

    —Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Sessor

  • „Fjóla er samkvæm sjálfri sér og hefur húmor fyrir lífinu. Hún er klár kona, kraftmikil og dugleg, sem tekst á við áskoranir af æðruleysi og er óhrædd við að leggja sitt á vogarskálarnar. Svo er hún einstaklega skemmtileg að vera í kringum“.

    — Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri