Meðmæli

Brynhildur Jónsdóttir

  • ,,Sem yfirmaður er Brynhildur mjög traust og raungóð, hún skiptir sér af, leggur línurnar og er með heilbrigð og jákvæð samskipti. Hún lætur sig nærumhverfið varða og ber heilsu og hag allra á vinnustaðnum fyrir brjósti. Hún er ávallt reiðubúin að rýna til gagns og fara í sjálfsskoðun ef þarf. Mjög góður yfirmaður.''

    — Elsa Birna Björnsdóttir, Deildarstjóri í sértækri stuðningsþjónustu.

  • ,,Ég hef notið þeirra forréttinda að hafa unnið að mörgum fjölbreyttum og krefjandi verkefnum með Brynhildi Jónsdóttur fyrir Sveitarfélagið Árborg undanfarin ár. Sú vinna hefur einkennst af fagmennsku og frábærri samvinnu. Lausnamiðuð nálgun, aðlögunarhæfni og sveigjanleiki eru að mínu mati einir af hennar helstu styrkleikum''.

    — Eiríkur Sigmarsson , forstöðuþroskaþjálfi frístundaklúbbnum Kotinu.

  • ,,Brynhildur er einstaklega nærverugóð, hún er fylgin sér, jákvæð, kraftmikil og það er virkilega gott að leita til hennar. Hún sýnir fólki umburðarlyndi og nálgast verkefni af staðfestu og samviskusemi".

    — Margrét Elísa Gunnarsdóttir, forstöðumaður félagslegrar stuðningsþjónustu